28 september 2009
Fattaði allt í einu að ég hef ekki bloggað í marga mánuði. Hef verið of upptekin á facebook eða eitthvað... Fór bloggrúnt áðan, og komst að því að fullt af fólki hefur skrifað eitt eða tvö blogg, síðan síðast er ég gáði, sem var mjög líklega í maí... En eigum við að fara aðeins yfir hvað hefur gerst, shall we?! 2. júní lokaprófstónleikar. sem gengur bara ágætlega og í kjölfarið fékk ég 5 daga til að sýna pabba, systrunum mínum, Möggu frænku og Ólíver Dór, Stavanger og næsta nágrenni 14. júní var útskriftarathöfn í skólanum. Flestir mættu í galla- eða stuttbuxum, og við fengum afhentar möppur, með nafninu okkar á, skrifað með túss.Möppurnar voru næstum því tómar, fyrir utan einn miða sem stóð að við myndum fá pappírana senda heim með haustinu. 16. júní sumarfrí á Íslandi. Var að vinna á heilsuhælinu og hafði það gott, alein heima í Borgarhrauninu, pabbi austur í Breiðdal að veiða og Hrafnhildur í vist hjá Elísabetu. Eyddi ótrúlega miklum pening í strætókort :) 16. ágúst heim til Stavanger. byrjaði í skólanum stuttu seinna og líkar bara vel enn sem komið er. Er að læra kennslufræði og á klarinett, með es-klarinett sem aukahljóðfæri. Síðan ég kom hefur verið ágætt veður og leiðinlegt veður, með rigningu og látum, en mest samt ágætis veður. Ég hef allavega ekki enn farið í stígvélunum í skólann, sem er merki um að það hefur ekki verið rigning þegar ég hef verið á leiðinni í skólann. Ég á það nefnilega til að klæða mig eftir veðri, þeas því veðri sem er akkúrat þá stundina sem ég er á leiðinni út úr dyrunum, án þess að hugsa um hvort það gæti rignt seinna. Því stend ég oft í dyrunum á skólanum á lopapeysunni og stari á rigninguna og óska þess að það stytti upp - sem þýðir yfirleitt að það rignir bara enn meira. Ég hef enn ekki internet heima, ég reyndi um daginn og pantaði svona internetpung eins og það kallast á Íslandi, en auðvitað nær það drasl ekki sambandi í kjallaraíbúðinni minni. Svo núna kemst ég á internetið alls staðar í Noregi, þarsem er gsmsímasamband, nema heima hjá mér.. Mætti halda að ég byggi innst inní Guðbrandsdalnum en ekki í miðbæ Stavanger, hvað er gsm símasamband varðar. ég hef ekki meira um það að segja. Adíós seríós Berglind @ 20:47
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||