27 janúar 2009

Bara í Noregi....

Eru gerðar bíómyndir um krakka í lúðrasveit. Og sjónvarpsþættir um krakka í lúðrasveit..


Berglind @ 22:24
|


Ohh, það er svo pirrandi að hafa ekki internet heima hjá sér, ég man aldrei hvað ég ætlaði að gera á netinu, þegar ég loksins kemt í samband. Samt gott líka, hef sjaldan gert eins mikið heima og síðustu vikur. Opnaði meirasegja musikkestetikk bókina á sunnudagskvöld. Var reyndar fljót að loka henni aftur, en hey, plús fyrir viðleitni?!

Átti svo alvarlega fullorðinslegan dag í gær. Eftir að hafa hangið í skólanum leengi (það var ógeðslega kalt í gær og ég var bara ekki að nenna út), kom ég við í Elkjøp á leiðinni heim og keypti ryksugu! Já, ég keypti fullorðins-heimilistæki! Reyndar það allra ódýrasta í búðinni, en meina, það er ekki eins og íbúðin mín sé stór, svo ég efast um að ég þurfi einhverja ryksugu sem kostar meira en 300 kr (norskar kr, ekki íslenskar).
Þegar ég kom heim, eldaði ég svo mat! Og það var ekki Fjordland (norska 1944) eða Grandiosa (frosin pizza), notaði efni úr nokkrum pokum og boxum og notaði bæði ofn og hellu.
Þegar öllu þessu var lokið fannst mér ég svo hrikalega fullorðin að ég fann fram Jón Odd og Jón Bjarna myndina, svona til að vægja upp á móti öllu fullorðinsdótinu. Það er nú alltaf jafn skemmtileg mynd :)


Berglind @ 15:12
|



21 janúar 2009

Ég hef svo lítið að segja að það er bara sorglegt. Eyði mestum tíma í æfingaherbergjum skólans, hef tekið ástfóstri við nýja munnstykkið og er á síðustu stigum þess að spila inn nýja klarinettið svo ég get farið að æfa mig að ráði á það.
Svo þegar ég er ekki að æfa mig, þá er ég ca hálfnuð með síðustu Twilight bókina, Breaking Dawn. Get samt ekki lesið meira en tvo daga í röð, annars næ ég ekki að hugsa um neitt annað en það sem er að gerast í bókinni, svo ég tek alltaf 1-2 daga pásur á 2ja daga fresti...
Svo keypti ég Nonna og Manna í fríhöfninni á leiðinni út. Var samt pínu efins, að ég myndi skemma nostalgíuna, en það var sko alger óþarfi. Það sem þessir þættir eru yndislegir!

Svo fékk ég virðisaukapeninginn tilbaka fyrir klarinettið (varð heldur betur hissa!) og er að hugsa um að fagna því með því að kaupa mér ryksugu og rafmagnsofn. Það finnst mér líka sorglegt, að mig langi mest af öllu í ryksugu og rafmagnsofn. Eldist um ca 20 ár við þessa ósk...

Annars er vorönnin að komast í ljós þessa dagana, ætla að halda áfram í lúðrasveitinni, þó mér finnist hún vera svolítið mikið peningaplokk (erum að fá nýja búninga og þurfum að borga fokkings 1000 kr fyrir þá, sem við fáum svo tilbaka þegar við hættum), en það er of gaman að spila á saxafóninn til að ég geti hætt og skilað honum. Nú lítur líka út fyrir að ég þurfi að fara að æfa mig til að geta spilað stöffið almennilega, sem gerir það enn skemmtilegra ;)
Svo ætla ég að spila í klarinettukórnum í Sandnes. Það er meira út af öfundsýki en nokkru öðru. Varð svo öfundsjúk þegar ég hlustaði á tónleikana þeirra fyrir jólin, gat varla notið tónleikanna almennilega því mig langaði svo að spila með...

En tölvan verður brátt batteríslaus, svo síja


Berglind @ 21:24
|



19 janúar 2009

Ó, ég væri svo til í að fá að prufa þetta píanó!

http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/01/19/barnasafn_i_filadelfiu_fekk_fraegt_risapiano_gefins/


Berglind @ 22:03
|



11 janúar 2009

Er komin til Stavanger, með smá stoppi í London, svona í leiðinni.
Það var gaman í London.
Ég skoðaði ekki Big Ben, Westminster Abbey, Tower of London, Madame Tussaud eða eitt einasta safn. Ég fór heldur ekki á neina leiksýningu og framdi þar með glæp að mati flestra.
En hinsvegar, þá keypti ég mér skínandi nýtt og fallegt klarinett, sem virkar með eindæmum vel, fallegt nýtt handsmíðað munnstykki sem er fáránlega gott. Ég keypti allar Twilight bækurnar, 2 geisladiska og 2 dvd diska, fyrir utan Nonna og Manna, sem ég keypti í fríhöfninni.
Ég labbaði í gegnum Hyde Park og rölti í kringum Piccadilly Circus, borðaði Ben&Jerry's ís og fór svo í bíó á Leicester Square þegar ég var alveg að gefast upp á röltinu.
Svo mætti ég Ben Stiller á Marylebone Road.
Allt þetta gekk með eindæmum hrakfallalaust fyrir sig. En svo kom að heimferð.

Ég þurfti að tékka mig út af hótelinu kl 12 og hafði því ekkert að gera til 5, sem ég áætlaði nógan tíma til að komast á flugvöllinn. Svo ég fór út að labba, búin að kemba Oxford Street og þar í kring og langaði eiginlega ekkert að versla meira. Tók lest til Piccadilly Circus og labbaði þar í kring. Þar er sko fullt af bíóum og endaði ég inni í einu þeirra. Á myndinni Twilight. Sem var í þriðja skipti sem eg sá téða mynd.
Samt tímdi ég ekki að fara út fyrr en myndin var búin og var því soldið sein af stað á flugvöllinn. Var með bakpoka, klarinetttöskuna, eina litla á hjólum og eina stóra á hjólum. Komst að því að það er ekkert auðvelt að taka svona mikinn farangur í neðanjarðarlest, sérstaklega ekki kl 17.30 á föstudegi.
Komst að lokum á lestarstöðina. Sem var stór. Það var alls ekki hlaupið að því að finna rétta lest, en að lokum (eftir tæpan hálftíma) tókst mér að finna lestina og sporið. Var komin inn og búin að raða töskunum og setjast, þegar ég ákvað að líta á bæklinginn og komst að því að akkúrat þessi lest var víst hraðlest til Brighton og stoppaði því ekkert á Gatwick. Svo ég flýtti mér út og aftur inn í stóra salinn, endaði svo í Gatwick flugvallarlestinni og komst á flugvöllinn, með tvo lestarmiða í vasanum, því auðvitað þurfti ég að kaupa nýjan miða í flugvallarlestina.
Ætlaði að gera virðisaukadæmið áður en ég tékkaði mig inn, en þar var lokað vegna manneklu, svo ég þurfti að tékka mig inn fyrst, fara í gegnum sekjúrití og skila svo umslaginu, ólokuðu, í eitthvað box og einhver myndi stimpla það og senda til baka. Verður kraftaverk ef peningurinn skilar sér inn á reikninginn minn...
Komst loks inn í fríhöfnina, keypti mér vatn og fór að hliðinu. Var rétt sest þegar opnað var inn í vélina, svo ég stóð upp aftur og inn, settist þar niður, opnaði New Moon (bók nr 2 í Twilight Saga) og næsta sem ég vissi var að vélin skall á flugvellinum í Stavanger. Missti af síðustu rútunni til Stavanger og endaði í leigubíl alla leiðina heim.

Vaknaði svo á laugardag með verki allsstaðar, í öxlunum, upp-og framhandleggjum, úlnliðum og fingrum eftir töskuber. Marbletti á báðum lærunum að aftan, því töskurnar voru alltaf að rekast í mig þegar ég labbaði. Með verki í mjöðmunum, því ég labbaði svo skakkt til þess að töskurnar væru ekki alltaf að rekast í mig og í hnjánum eftir allt labbið upp og niður stigana í neðanjarðarlestinni.

Er voðalega glöð núna að ég þarf ekki að ferðast neitt fyrr en í mars og þá í mesta lagi með lest eða rútu...


Berglind @ 21:40
|



05 janúar 2009

Ætlaði eiginlega ekkert að nenna að skrifa svona áramótablogg, aðallega af því að ég fékk gullfiskaheila við fæðingu og á erfitt með að muna það sem gerðist í nóvember og ekki séns að ég gæti munað eitthvað frá því á síðasta skólaári! En ég skipti um skoðun og fór yfir bloggið mitt allt síðasta ár. Komst að því að það hefur bara eiginlega ekkert merkilegt skeð allt þetta ár, svo ég ætla bara að skrifa um eitthvað ómerkilegt :)

Í fyrsta mánuði ársins dró helst til tíðinda að ég missti næstum því af fluginu frá Osló til Stavanger. Gleymdi að stilla klukkuna á norskan tíma…

Febrúar fór betur. Fann mér voða fínan kjól á 70 norskar krónur, spilaði í honum á Shellpris tónleikunum með hljómsveit skólans, tónleikar sem gengu með yfirburðum vel.

Í mars fór ég á þjóðlagatónlistarnámskeið í Voss, uppgötvaði þar að mér finnst þjóðlagatónlist æði og ákvað í framhaldið að mig langar að búa í Færeyjum í smátíma. Svo átti ég afmæli og ég fékk stafrænt sjónvarp, elskaði það alveg þartil í haust, því ég var samningsbundin og án sjónvarps og þarf því að borga helvítis draslið þar til í mars án þess að nota það…

Í apríl skrapp ég til Íslands, óvænt fyrir alla nema pabba og Hrafnhildi. Fór á árshátíð LV og sundmót hjá Hrafnhildi og eitthvað fleira. Svo komst ég að því að hjólið mitt, tæplega 1 og ½ árs gamalt, var ryðgað í klessu og borgaði sig ekki að gera við það.

Í byrjun maí kom sumarið, en fór mjög fljótt aftur. Seinni hluti mánaðarins snerist um bongóblíðu, drauma um strandferðir og bölv yfir öllum prófunum sem ég þurfti að læra fyrir í stað þess að fara á ströndina. Nema í bláendann þegar jarðskjálfti hvolfdi Hveragerði næstum því, þá leitaði hugurinn ansi mikið heim.

Í júní kom ég aftur heim til Íslands, fór að vinna á Hælinu og átti eflaust fyndnasta samtal ársins. Það var við hjúkku nokkra:
Hjúkka: Já…og þú verður hér í sumar? (átti við læknamóttökuna)
Ég: Jámm.
Hjúkka: Og hva, þú ert bara næstum því fullorðin?
(Ég: Ekkert svar)
Húkka: Hvað ertu eiginlega gömul?
Ég: Öööö…26 ára.
Hjúkka: Nú?! Ji, þú ert svo smábarnaleg!
Ég: Ömm, ok…

Júlí einkenndist af skátun, undirbúningi fyrir landsmót og svo landsmótið sjálft. Heil vika á Akureyri, í betra veðri en nokkur gæti ímyndað sér og með skemmtilegasta hóp af krökkum sem ég hef kynnst.

Í ágúst tók ég mér sumarfrí í fyrsta sinn í langan tíma, skrapp vestur í Hörgshlíð ásamt familíunni, fór að veiða upp á vatni og við röltum upp að Myllufossi og fleira. Góðir tímar.
Fór svo út til Noregs í endann, flutti út úr Draumkvæðastíg og inn í skrifstofu á háskólasvæðinu. Týndi lyklunum að bílaleigubílnum, nokkuð sem kostaði mig mikið hugarangur og hellings pening.
Í september byrjaði ég fyrir alvöru í skólanum, byrjaði loksins í lúðrasveit, fékk trompetinn minn (þennan fjólubláa), uppgötvaði að Tverrfaglig Prosjekt væri yfirmáta leiðinlegt og tímafrekt verkefni og spilaði á óperuhátíð með algerlega óhæfum stjórnanda.

Október snerist að miklu leyti um kreppu, áhyggjur af peningum, námslánum og svoleiðis. Fór í útvarpsviðtal og fékk án efa fyndnustu spurningu ársins í einni af útskýringarumræðunum um hugsanlegt gjaldþrot Íslands:
“En af hverju reddar Danmörk ykkur ekki? Þið heyrið jú undir Danmörk!”
Í sama mánuði sá ég Martin Fröst á tónleikum, klárlega einn af hápunktum ársins. Ég varð líka fræg, eða fór allavega í útvarpsviðtal og svo skrapp ég til Íslands.

Nóvember einkenndist af rigningu. Ég tók eitthvað hryllingsmyndakast og horfði á helling af misógeðslegum hryllingsmyndum.
Ég gafst upp á að vera alvöru Íslendingur og keypti mér stígvél. Næstu þrjá daga á eftir kom ekki dropi úr lofti, eða ekki fyrr en systir mín steig fæti sínum á Stavangerska jörð. Þá daga hellirigndi.
Síðustu vikuna vaknaði ég fyrir allar aldir til að sýna grunnskólasýninguna í afskekktustu skólu Rogaland, með tilheyrandi löööngum bílferðum og ógurlega mikilli þreytu.

Í desember gat ég loksins haft áhyggjur af yfirvofandi klarinettprófi og skilum á musikkestetikk ritgerðum. Hafði bæði af, setti met í ritgerðaskrifahraða, 6 klukkutímar gjössovel. Mæli samt alls alls ekki með því, hef næstum meiri áhyggjur af því þegar ég fæ ritgerðina tilbaka…
Fór líka í ferðalag, sem klárlega verður ritað í bækur sem eitt það versta. Skagar hátt upp í ferðalag dauðans ‘05 þegar flugvélin týndist og ég hljóp fram og tilbaka á Kastrup í 10 klukkutíma. Tók lestina til Osló og auðvitað olli rafmagnsleysi fyrir utan Stavanger það mikilli seinkun að tvísýnt var hvort ég næði fluginu. En það hafðist og við tók hringflug um Skandinavíu sem að lokum skilaði mér til Keflavíkur.
Jólin mín voru góð, fékk samt fullt af veikjum, gubbupest, flensu og kvef. Náði mér nokkurn veginn á strik og fékk svo aftur kvef.
Áramótin voru líka skemmtileg, skaupið var örugglega allt í lagi, mér fannst það allavega fyndið, en minnið mitt (eða öllu heldur skortur á minni) sameinað með búsetu í öðru landi gerir það að verkum að ég veit sjaldnast hverju er verið að gera grín að.

Við blasir svo nýtt ár, veit voða lítið um hvað ég mun hafa fyrir stafni, þó nokkrir hlutir séu nú þegar niðurnjörfaðir. Fyrst ber að nefna ferð til London, sem hefst nú á miðvikudaginn. Þar verður hápunkturinn klárlega heimsókn til Howarth of London, þar sem ég ætla að festa kaup á A-klarinetti og nýju munnstykki, úrvalið hjá þeim af munnstykkjum er alveg til að deyja fyrir. Hitt sem mig hlakkar til er Oxford Street, en þar er víst húdsj bókabúð og tónlistarbúð, hef ekki gert fleiri plön, býst við því að þetta þrennt taki mestan partinn af deginum...
Næst á eftir er endurtekning á Befriad söngleiknum, í Kristiansand og svo bachelortónleikar í vor.


Berglind @ 01:49
|


links

ásta
bára
guðjón
kristjana
mamma
sóley
valur


ólíver dór, emma dís og írena dúa
auðunn ingi og oddur olav
brynjar þór
iðunn hekla

quotes

Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him, suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.

  • Will & Grace


    Isabella Swan: How old are you?
    Edward Cullen: Seventeen.
    Isabella Swan: How long have you been seventeen?
    Edward Cullen: A while.

  • Twilight


    Manni: Ef þú tekur mig ekki með, þá öskra ég af öllum lífs og sálarkröftum.
    Nonni og Manni


    Haraldur: Hugsaðu vel um fólk, Manni, ekki illa. Annars líður þér sjálfum illa.
    Nonni og Manni


    archives

    febrúar 2006
    mars 2006
    apríl 2006
    júní 2006
    júlí 2006
    ágúst 2006
    september 2006
    október 2006
    nóvember 2006
    desember 2006
    janúar 2007
    febrúar 2007
    mars 2007
    apríl 2007
    maí 2007
    júní 2007
    júlí 2007
    ágúst 2007
    september 2007
    október 2007
    nóvember 2007
    desember 2007
    janúar 2008
    febrúar 2008
    mars 2008
    apríl 2008
    maí 2008
    júní 2008
    júlí 2008
    ágúst 2008
    september 2008
    október 2008
    nóvember 2008
    desember 2008
    janúar 2009
    febrúar 2009
    mars 2009
    apríl 2009
    maí 2009
    september 2009
    nóvember 2009
    desember 2009
    september 2010

    credits

    Skin by: sixseven
    Powered by: blogger
    Powered by: haloscan