26 júní 2008

Hélt ég myndi springa úr hlátri um daginn, átti svo skemmtilegt samtal :)

Kona: Já, og þú verður hér í sumar?
Ég: Jájá.
Kona: Og hva, þú ert bara næstum því fullorðin?
(Ég: ekkert svar)
Kona: Hvað ertu eiginlega gömul?
Ég: 26 ára.
Kona: Nú?! Ji, þú ert svo smábarnaleg!
Ég: ok...

Ég get ekki ákveðið mig, hvort er meira brilliant, næstum því fullorðin eða smábarnaleg ;)


Berglind @ 20:21
|



14 júní 2008

Hnjé hnjé hnjé....

Leigusalinn, hann Abdellah (sem er algert fífl), var hér áðan. Hann var að láta mig vita að hann ætlar að hækka leiguna í 3500, ég vissi reyndar alveg af því, því við fundum auglýsinguna á finn.no. En ég sagði að ég þyrfti þá líklegast að flytja og ætla að láta hann vita á morgun. Hann vildi þá að ég flytti út 1. ágúst (hann segir háskólann vilja leigja íbúðina og þeir vilja þá væntanlega fá hana þá, auk þess sem það eru langflestir að leita í sumar), en ég sagði bara neinei, samkvæmt samningnum á ég 3ja mánaða uppsagnarfrest og hef því til lok sept að flytja út. Ég ætla að standa svo fast á því, hann mun þurfa að borga mér (og það veeel!) til að fá mig til að flytja út fyrr :)
Fíbbl!


Berglind @ 20:13
|



12 júní 2008

Mig er búið að kvíða fyrir því í marga mánuði að fara með nokkrar bækur og geisladiska á bókasafnið. Ég nefnilega náði að týna bæklingunum frá diskunum og skammaðist mín alveg niðrí rassgat fyrir það. Svo, að í marga mánuði, hef ég frestað og lengt lánið á öllu, þar til í dag, að ég gat ekki frestað þessu lengur og fór á bókasafnið með allt draslið. Byrjaði á að skila bókunum og var alveg með hjartað í buxunum yfir að fara inn með diskana.
Hvað helduru að hafi verið inn í einni bókinni?! Jú, bæklingarnir!!


Berglind @ 19:55
|



11 júní 2008

Jæja, einkunnir eru farnar að týnast inn á þartilgerðan vef skólans. Ég er búin að fá á hreint að ég þarf aldrei aldrei aldrei að gera hljómfræði aftur eða spila á píanó, frekar en ég vil og verður það þá eftir mínum reglum :)

JEI :D


Berglind @ 22:44
|



09 júní 2008

SUUUUMAAAARFRÍÍÍÍÍ :D

Loksins loksins loksins er ég komin í langþráð sumarfrí...og um leið byrjar að rigna! Síðasta mánuð hefur verið þvílík bongóblíða og ég reynt að halda mig innandyra og þóst vera að læra, svo um leið og ég, með góðri samvisku, get lagst út á ströndina, þá droppar hitinn niðrí skítkalt og á að fara að rigna. Hrmpf!

En semsagt, tónheyrnarprófið gekk bæði vel og illa og gildir það um bæði skriftlegt og munnlegt. Sorglegt hvað ég er hrikalega léleg að syngja laglínur, en setjið fyrir framan mig hljóðfæri og þá er það pís of keik.

Annars hef ég gert mikið annað en lært undanfarið, enda ekki hægt að æfa tónheyrn nema í takmarkaðan tíma. Held að of mikil tónheyrn geri fólk álíka geðveikt og óbóspil...

Fór td í miðnæturgöngutúr um daginn. Við Mette ákváðum að fara í smá túr, klukkan var orðin tólf og hitinn ennþá yfir 20 stigum, svo við fórum út á stuttbuxum og bolum, eiginlega bara til að geta sagst hafa verið úti eftir miðnætti á stuttbuxum og bol :) Túrinn varð þó mun ánægjulegri fyrir Íslendinginn mig, þegar við sáum þetta ofursæta dýr :)



Sætur, nó?!
Fleiri hér: http://web.mac.com/berglind.h/Site/Upphaf.html


Berglind @ 22:34
|



03 júní 2008

Hrikalega fyndin auglýsing frá Tine :)



Berglind @ 00:24
|



02 júní 2008

Veit ekki hversu oft ég hef ætlað að skrifa eins og eitt blogg, en maður á engin orð...
Hluti af mér langar til að hoppa upp í næstu flugvél, en á hinn veginn er ég afskaplega fegin að vera ekki heima þessa dagana, ég væri orðin ein taugahrúga, þeas. ef ég hefði lifað af þann stóra. Ef það er eitthvað sem ég virkilega hata, þá eru það jarðskjálftar!
Elísabet tók myndir af rústinu í húsinu og setti inn á síðu Laugateigskrakkanna.

Annars líður fljótt að heimferð. Kláraði hljómfræðipróf í dag, bara 5 klukkutímar, takk fyrir. Nú þarf ég aldrei aftur að hugsa um hljómfræði, jei :) Nema náttúrulega eiginlega alltaf ;)

Hér er skýjað akkúrat þessa stundina. Að sjálfsögðu. Hefur ekki sést ský á himni síðan einhvern tíma í síðustu viku, þá var eithvað hvítt lengst út við sjóndeildarhringinn, fræðimenn hafa kallað það fyrirbæri ský. Svo í dag, loksins þegar ég get legið í sólbaði á þess að fá samviskubit, þá verður alskýjað og kalt. Týpískt. En það á að birta til á morgun, sól og 26 gráður. En eftir það er það víst bara niður á við. Fúlt.

Nú er það heimferð eftir 13 daga. Eins gott að jörðin verði til friðs!


Berglind @ 22:56
|


links

ásta
bára
guðjón
kristjana
mamma
sóley
valur


ólíver dór, emma dís og írena dúa
auðunn ingi og oddur olav
brynjar þór
iðunn hekla

quotes

Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him, suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.

  • Will & Grace


    Isabella Swan: How old are you?
    Edward Cullen: Seventeen.
    Isabella Swan: How long have you been seventeen?
    Edward Cullen: A while.

  • Twilight


    Manni: Ef þú tekur mig ekki með, þá öskra ég af öllum lífs og sálarkröftum.
    Nonni og Manni


    Haraldur: Hugsaðu vel um fólk, Manni, ekki illa. Annars líður þér sjálfum illa.
    Nonni og Manni


    archives

    febrúar 2006
    mars 2006
    apríl 2006
    júní 2006
    júlí 2006
    ágúst 2006
    september 2006
    október 2006
    nóvember 2006
    desember 2006
    janúar 2007
    febrúar 2007
    mars 2007
    apríl 2007
    maí 2007
    júní 2007
    júlí 2007
    ágúst 2007
    september 2007
    október 2007
    nóvember 2007
    desember 2007
    janúar 2008
    febrúar 2008
    mars 2008
    apríl 2008
    maí 2008
    júní 2008
    júlí 2008
    ágúst 2008
    september 2008
    október 2008
    nóvember 2008
    desember 2008
    janúar 2009
    febrúar 2009
    mars 2009
    apríl 2009
    maí 2009
    september 2009
    nóvember 2009
    desember 2009
    september 2010

    credits

    Skin by: sixseven
    Powered by: blogger
    Powered by: haloscan