04 maí 2009
jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að skrifa eitthvað... Vorið er að breytast í sumar, allt orðið þvílíkt grænt og blómstrandi, flest tré hér í útlandinu blómstra á vorin með hvítum, bleikum og gulum blómum :) ég er tæknilega séð í prófi akkúrat núna, heimapróf í musikkestetikk (sem ég er búin að komast að heitir tónlistarfagurfræði á íslensku!!), þarf að skrifa verkefni um autonomiestetikk, eða valdi það, virtist vera auðveldasta verkefnið. annars er brjálað að gera hjá mér ca næstu 2 vikurnar. Einn óbóleikari hér í skólanum ákvað að nenna ekki að bíða í nokkra daga eftir prófið sitt til að spila með öðrum á kammertónlistarprófi og fara heim áður en kt.prófin er. Þarmeð setti hún 4 aðra á hausinn með prógram, svo að nú þarf ég (í staðinn fyrir að þurfa að æfa 1 tríó (sem er nánast klárt) og 2 konserta) að æfa upp 2 tríó, 2 konserta og 1 kvartett á 2 vikum...plús að æfa prófverkin mín, gera estetikkverkefnið og æfa mig fyrir klarinett tónleika 11. maí...pjúff! Núna um síðustu helgi var æfingahelgi og konsert með Rogalands Blåsensemble, sem er ný lúðrasveit (svipuð uppsett og Blásarasveit Reykjavíkur). Vorum á 6 klukkutíma æfingum föstudag og laugardag, 2 tímar á sunnudag og svo tónleikar. Var svo búin bæði fös og lau, en einhvern veginn tókst þetta allt saman og tónleikarnir voru bara mjög góðir, alltaf sorglegt samt þegar eru fleiri hljóðfæraleikarar að spila, en fólk að hlusta ;) Við vorum með þvílíkt góðan stjórnanda, Rune eitthvað, sem var líka svo skemmtilegur og fyndinn :) Svo kom alveg klassískt klarinettmóment á sunnudagsæfingunni, þegar stelpan við hliðina á mér gat allt í einu ekki spilað nema 5 efstu nóturnar. Skoðaði hljóðfærið hennar og ein fjöðrin var brotin, svo að einn takkinn var bara opinn og auðvitað er þetta mikilvægur og mikið notaður takki, svo það var ekki möguleiki á að líma hann niður. Svo það endaði með að Tone keyrði heim og náði í sitt klarinett til að lána henni :) En jæja, ætli ég fari ekki að koma mér heim að vinna eitthvað í þessu verkefni... Berglind @ 17:03
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||