![]() |
||||
29 apríl 2009
Hef ég einhvern tíma minnst á að ég elska vorið! svo við tölum ekki um blóm og tré og blómstrandi tré :) ![]() ![]() ![]() ![]() Berglind @ 15:35
|
17 apríl 2009
Hef absólúttlí ekkert að tjá mig um, svo ég ætla bara að setja inn nokkrar myndir af vorinu sem ríkir hér þessa dagana :) Svanirnir löguðu til hreiðrið niðrí bæ ![]() ![]() ![]() Berglind @ 16:24
|
06 apríl 2009
Ég keypti sjónvarp á föstudaginn. Sem er æðislegt, því ég eeeelska að horfa á sjónvarp. Kom sjálfri mér þó á óvart með að ég hef alveg gert það sem ég ætlaði að gera, en ekki legið heima og horft á sjónvarp. Og hvað skyldi vera besta uppgötvunin?! Jú, Tine er með nýja "no milk today" auglýsingu :D Berglind @ 16:06
|
01 apríl 2009
Þá er (loooooksins) búið að ákveða dagsetningu fyrir útskriftartónleikana mína í vor. 2. júní kl 17.30 Allir eru meira en lítið velkomnir!!! Er búin að leggja inn pöntun hjá veðurguðunum um brjálaða sól og gott veður vikuna á eftir, bara svona til að gera dílinn enn betri... Annars sit ég núna á bókasafninu, eða reyndar fyrir utan bókasafnið (en inni í menningarhúsinu) og sörfa á netinu. Komst nefnilega að því að hér er ekki lokað fyrir niðurhal (ekki að ég ætli að viðurkenna að ég stundi það, enda með öllu óheimilt og siðlaust) og er líka svona líka sterkt net (eða stórt eða eitthvað) að það tekur innan við klukkutíma að ná í sjónvarpsþátt (aftur, ég viðurkenni samt ekki að iðka það sjálf) Annars er lítið í fréttum, lítur út fyrir að ég fái nóga vinnu í maí, þegar lúðrasveitin mín fer til USA og ég verð eftir heima. Flest þeirra sem eru að kenna og fara með, hafa beðið mig um að kenna fyrir sig á meðan og þar sem ég hef aldrei lært almennilega notkun orðsins nei, þá lítur út fyrir að ég þéni allnokkuð á þessum 2 vikum :) Vorið, sem byrjaði með trukki og dýfu fyrir ca 2 vikum, er ekkert að flýta sér, það er ennþá kalt (svona flíspeysukalt) og ekkert voðalega fínt rigningarlega séð, alltaf skýjað og svoleiðis Og gvöð, hvað ég vona að það breytist bráðum, er orðin nett leið á rigningunni... En á morgun er ég er að fara að fjárfesta í sjónvarpi, notuðu sony 32" stykki, svo þá má rigna eins mikið og hægt er, allavega á meðan ég er inn, sömu reglur og áður gilda að sjálfsögðu á meðan ég er utandyra... En stjúpid, stjúpid ég gleymdi hleðslutækinu, svo ég er víst óver and át, for ná... Berglind @ 19:57
|
|
links
ásta
quotes
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him, suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you? Manni: Ef þú tekur mig ekki með, þá öskra ég af öllum lífs og sálarkröftum. Nonni og Manni Haraldur: Hugsaðu vel um fólk, Manni, ekki illa. Annars líður þér sjálfum illa. Nonni og Manni
archives
febrúar 2006
credits
|
|||
![]() |