21 janúar 2009
Ég hef svo lítið að segja að það er bara sorglegt. Eyði mestum tíma í æfingaherbergjum skólans, hef tekið ástfóstri við nýja munnstykkið og er á síðustu stigum þess að spila inn nýja klarinettið svo ég get farið að æfa mig að ráði á það. Svo þegar ég er ekki að æfa mig, þá er ég ca hálfnuð með síðustu Twilight bókina, Breaking Dawn. Get samt ekki lesið meira en tvo daga í röð, annars næ ég ekki að hugsa um neitt annað en það sem er að gerast í bókinni, svo ég tek alltaf 1-2 daga pásur á 2ja daga fresti... Svo keypti ég Nonna og Manna í fríhöfninni á leiðinni út. Var samt pínu efins, að ég myndi skemma nostalgíuna, en það var sko alger óþarfi. Það sem þessir þættir eru yndislegir! Svo fékk ég virðisaukapeninginn tilbaka fyrir klarinettið (varð heldur betur hissa!) og er að hugsa um að fagna því með því að kaupa mér ryksugu og rafmagnsofn. Það finnst mér líka sorglegt, að mig langi mest af öllu í ryksugu og rafmagnsofn. Eldist um ca 20 ár við þessa ósk... Annars er vorönnin að komast í ljós þessa dagana, ætla að halda áfram í lúðrasveitinni, þó mér finnist hún vera svolítið mikið peningaplokk (erum að fá nýja búninga og þurfum að borga fokkings 1000 kr fyrir þá, sem við fáum svo tilbaka þegar við hættum), en það er of gaman að spila á saxafóninn til að ég geti hætt og skilað honum. Nú lítur líka út fyrir að ég þurfi að fara að æfa mig til að geta spilað stöffið almennilega, sem gerir það enn skemmtilegra ;) Svo ætla ég að spila í klarinettukórnum í Sandnes. Það er meira út af öfundsýki en nokkru öðru. Varð svo öfundsjúk þegar ég hlustaði á tónleikana þeirra fyrir jólin, gat varla notið tónleikanna almennilega því mig langaði svo að spila með... En tölvan verður brátt batteríslaus, svo síja Berglind @ 21:24
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||