11 janúar 2009
Er komin til Stavanger, með smá stoppi í London, svona í leiðinni. Það var gaman í London. Ég skoðaði ekki Big Ben, Westminster Abbey, Tower of London, Madame Tussaud eða eitt einasta safn. Ég fór heldur ekki á neina leiksýningu og framdi þar með glæp að mati flestra. En hinsvegar, þá keypti ég mér skínandi nýtt og fallegt klarinett, sem virkar með eindæmum vel, fallegt nýtt handsmíðað munnstykki sem er fáránlega gott. Ég keypti allar Twilight bækurnar, 2 geisladiska og 2 dvd diska, fyrir utan Nonna og Manna, sem ég keypti í fríhöfninni. Ég labbaði í gegnum Hyde Park og rölti í kringum Piccadilly Circus, borðaði Ben&Jerry's ís og fór svo í bíó á Leicester Square þegar ég var alveg að gefast upp á röltinu. Svo mætti ég Ben Stiller á Marylebone Road. Allt þetta gekk með eindæmum hrakfallalaust fyrir sig. En svo kom að heimferð. Ég þurfti að tékka mig út af hótelinu kl 12 og hafði því ekkert að gera til 5, sem ég áætlaði nógan tíma til að komast á flugvöllinn. Svo ég fór út að labba, búin að kemba Oxford Street og þar í kring og langaði eiginlega ekkert að versla meira. Tók lest til Piccadilly Circus og labbaði þar í kring. Þar er sko fullt af bíóum og endaði ég inni í einu þeirra. Á myndinni Twilight. Sem var í þriðja skipti sem eg sá téða mynd. Samt tímdi ég ekki að fara út fyrr en myndin var búin og var því soldið sein af stað á flugvöllinn. Var með bakpoka, klarinetttöskuna, eina litla á hjólum og eina stóra á hjólum. Komst að því að það er ekkert auðvelt að taka svona mikinn farangur í neðanjarðarlest, sérstaklega ekki kl 17.30 á föstudegi. Komst að lokum á lestarstöðina. Sem var stór. Það var alls ekki hlaupið að því að finna rétta lest, en að lokum (eftir tæpan hálftíma) tókst mér að finna lestina og sporið. Var komin inn og búin að raða töskunum og setjast, þegar ég ákvað að líta á bæklinginn og komst að því að akkúrat þessi lest var víst hraðlest til Brighton og stoppaði því ekkert á Gatwick. Svo ég flýtti mér út og aftur inn í stóra salinn, endaði svo í Gatwick flugvallarlestinni og komst á flugvöllinn, með tvo lestarmiða í vasanum, því auðvitað þurfti ég að kaupa nýjan miða í flugvallarlestina. Ætlaði að gera virðisaukadæmið áður en ég tékkaði mig inn, en þar var lokað vegna manneklu, svo ég þurfti að tékka mig inn fyrst, fara í gegnum sekjúrití og skila svo umslaginu, ólokuðu, í eitthvað box og einhver myndi stimpla það og senda til baka. Verður kraftaverk ef peningurinn skilar sér inn á reikninginn minn... Komst loks inn í fríhöfnina, keypti mér vatn og fór að hliðinu. Var rétt sest þegar opnað var inn í vélina, svo ég stóð upp aftur og inn, settist þar niður, opnaði New Moon (bók nr 2 í Twilight Saga) og næsta sem ég vissi var að vélin skall á flugvellinum í Stavanger. Missti af síðustu rútunni til Stavanger og endaði í leigubíl alla leiðina heim. Vaknaði svo á laugardag með verki allsstaðar, í öxlunum, upp-og framhandleggjum, úlnliðum og fingrum eftir töskuber. Marbletti á báðum lærunum að aftan, því töskurnar voru alltaf að rekast í mig þegar ég labbaði. Með verki í mjöðmunum, því ég labbaði svo skakkt til þess að töskurnar væru ekki alltaf að rekast í mig og í hnjánum eftir allt labbið upp og niður stigana í neðanjarðarlestinni. Er voðalega glöð núna að ég þarf ekki að ferðast neitt fyrr en í mars og þá í mesta lagi með lest eða rútu... Berglind @ 21:40
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||