![]() |
||||
|
27 nóvember 2008
7 af 9. 16, 12 og 11. Tel mig hafa unnið til afreka í dag, þegar ég kenndi 4 krökkum samtímis að setja saman, taka sundur og blása í klarinett. Og öllum 4 tókst að fá nokkuð fínt hljóð í rörið. Svo kenndi ég 9 stelpum að spila Jingle Bells utanbókar. Líka samtímis. Býst fastlega við því að stjórnarndinn hafi verið ofboðslega ánægður eftir pásuna, með 9 stykki stelpur spilandi Jingle Bells, mjög líklega nonstop :) Annars hefur dagurinn verið laaangur. Vaknaði um 6.30 (já, ég er að segja satt!) og var mætt fyrst af öllum í ferjuna (jú, er aftur að segja satt!). Spiluðum 2 sýningar í sama skólanum, sem er óskaplega skrýtinn uppsettur. 1-4 bekkur og svo 8-10 bekkur eru á sama stað, en 5-7 bekkur allt annars staðar. Og svo er framhaldsskóli við hliðina á 1-4/8-10 húsunum. Við erum að sýna fyrir 5-7 bekk, en samt vorum við í salnum hjá 1-4/8-10 og þurftu því krakkarnir að labba þvert yfir bæinn til að koma á sýninguna. Tókum svo ferju til baka og ég sver það að næstum alla leiðina talaði jassgaurinn (sem ég hef nú ákveðið að er alger kjeeelling) um hvað Fjordland (Noregs 1944 réttir) væri í raun óþarft, því það sé svo auðvelt að gera allan þann mat sem Fjordland gerir tilbúna. Og svo fór hann í gegnum hina ýmsu rétti og hvernig maður gerði þá frá grunni. Þetta tók næstum allan hálftímann sem ferjan tók að koma okkur yfir fjörðinn. Ég reyndar sofnaði í ca 10 mínútur, en þegar ég vaknaði var enn sami svipur á trommugaurnum (sem byrjaði óvart umræðuna með því að segjast ætla að borða Fjordland fiskibollur í middag), svona "why, oh why are you telling me this??!"-svipur. Ég fór að sjálfsögðu að hlæja og held ég hafi móðgað jassgaurinn þegar ég spurði hvort hann væri enn að tala um Fjordland. Móðgaði hann reyndar meira seinna, svo ég efast um að við verðum miklir vinir eftir að morgundeginum lýkur. En mikið þokkalega ætla ég að sofa út á laugardaginn, maður!! Berglind @ 20:13
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||
![]() |
||||