![]() |
||||
|
05 október 2007
Fyrsti dagur í haustfríi er í dag. Þetta átti víst að vera síðasti dagur í skóla, en þar sem tveir af fjórum meðlimum klarinettkvartettsins voru veikir, eða þeas. einn var veikur og hinn er búinn að vera misteríöslí í fríi frá skóla síðustu þrjá daga. Af tilefni dagsins í dag, svaf ég allt of lengi og gerði eiginlega ekkert merkilegt í dag. Lá bara í sófanum og naut þess að geta glápt á dagsjónvarpið án samviskubits yfir að ég ætti nú að vera að gera eitthvað annað. Ég labbaði reyndar út í búð um 8-leytið, á peysunni, því það var svo milt og fínt veður. Það er reyndar búið að vera hálfskrítið veður hér síðan ég kom tilbaka frá Osló. Búið að vera blíða bara og oft sól í tillegg, ég hef ekki farið í meira en peysu, reyndar einstaka sinnum þurft að harka aðeins af mér, þar sem það hefur verið oggulítið of kalt. Ég fór yfir það sem ég þarf að gera í haustfríinu og komst að því að það verður líklegast ekki eins tómt og leiðinlegt og ég hélt. Ég hef nefnilega alveg fullt af verkefnum og næ örugglega að dreifa því yfir vikuna, tek bara Joey á þetta. Ég þarf meðal annars að gera ritgerð í tónlistarsögu og gera loggbókina (sem gengur út á það að skrifa eitthvað um öll verkin sem eru á hlustunarlistanum fyrir tímana), svo þarf ég að gera eitt hljómfræðiverkefni. Ég ætla að útsetja eitt eða fleiri lög fyrir stelpurnar í Madlamark og ég þarf að kaupa hjólapumpu (komst að því þegar ég fór af stað hjólandi að kenna, að dekkin voru vita loftlaus), einhvern daginn ætla ég að baka kanilsnúða og svo hef ég sett mér það markmið að blogga á hverjum einasta degi, jafnvel þó ég hafi ekkert að segja :) Svo náttúrulega æfi ég mig eitthvað smá inn á milli... Berglind @ 05:27
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||
![]() |
||||