![]() |
||||
|
27 ágúst 2007
Undur og stórmerki hafa gerst hjá hrakfallabálki undirrituðum. *trrrrrúsj* (sem þýðir, eins og allir vita, trommusláttur) Ég fór í skólann í dag! Var á æfingu í heila þrjá klukkutíma, sem gerir samtals skólagöngu mína í vetur, rétt rúmar fjórar klukkustundir...geri aðrir betur! Ég fór snemma af stað út í strætóskýli, því ég ætlaði að koma við á pósthúsinu og taka svo næsta niðrí bæ. Fyrsti strætóinn keyrði bara framhjá, því hann var víst fullur (af fólki, strætóinn sjálfur eflaust bláedrú). Næsti strætó lét bara ekkert sjá sig og þegar sá þriðji loksins lét sjá sig, var ég búin að hringja í Tone, í hálfgerðu panikki, til að biðja hana um að ná í mig og hún var komin. Skil nú ekki hvað er verið að eyða peningum og trjám í að gera strætóbækurnar, eða blöðin sem hanga í öllum skýlum, þegar er ekkert hægt að treysta á áætlanirnar. Ég beið td í einn og hálfan klukkutíma eftir strætó á laugardagskvöldið, endaði með því að fara bara heim aftur, því það kom aldrei neinn fjandans strætó. Annars er bara ekkert gott veður núna, eða eins og Therese orðaði það áðan, það er bara eins og það sé vetur. Það er reyndar ekki rigning, en kalt og vindur og það er ágúst!! Í fyrra var sko um 30 stiga hiti og sól á þessum tíma! En vá, ég er svo inspírasjónlaus að það er bara fyndið...ætla bara að fara að horfa á dvd... Berglind @ 22:46
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||
![]() |
||||