26 júlí 2006
Búin að fá íbúð í Stavanger. Hann Per er með þrjár íbúðir sem eru að losna og ætlar bara að halda einni eftir fyrir mig og ég get bara komið og kíkt á hana þegar ég kem :) Yndislegi Per :) Mér líkar sko vel við Per :) Berglind @ 19:28
|
25 júlí 2006
Er að EIPA!!!! Mig grunar að velflestum Norðmönnum hafi dottið til hugar að flytja til Stavanger í haust! Langar einhvern að gefa mér hús í Stavanger?! Það þarf ekki að vera stórt... Er td. mjög ástfangin af þessari íbúð Berglind @ 18:54
|
22 júlí 2006
Ástarreiknivélin Klikkaðu á linkinn, settu nafnið þitt og þeirra þriggja sem þú ert mest skotin í og reiknivélin reiknar út, mjög vísindalega, hversu vel þið eigið saman... Berglind @ 19:26
|
21 júlí 2006
Jei, hvað það er gott veður :) Er að hugsa um að flýja að heiman... það sitja um það bil milljón og ein kónguló hér og þar á húsinu, flestar búnar að spinna svakalega vefi, margar beint í gangveginn og sumar eru með flugur hangandi í púpum niðrúr... Yfirbjóður bara! En engir geitungar :) Berglind @ 18:17
|
18 júlí 2006
Hver man ekki eftir Beverly Hills 90210?! Krakkarnir í West Beverly High sem voru það flottast af því flottasta? Eftir að ég sá Love Monkey um daginn, datt mér í hug að finna nýjar myndir af krökkunum, hvernig ætli þau líti út í dag...? ...og taddaaaaa: Vara viðkvæmar sálir við sumar af myndunum, sumir hafa ekki alveg verið nógu duglegir við kollagen, bótox og nefaðgerðir (til dæmis Dylan og Brandon!!!!) Brandon: Brenda: Kelly: Donna: Dylan: Steve: David: Andrea: Berglind @ 03:00
|
12 júlí 2006
Áður líkaði mér illa við Rockstar. Nú þoli ég ekki þáttinn! Af því að hann er sýndur kl eitt í nótt, verður Beverly Hills nænótúvonó fært til fokkings tvö! Fúlt... Berglind @ 02:03
|
09 júlí 2006
Mér finnast auglýsingar ansi leiðinlegar. Ég held að það sé þess vegna sem mér finnst allt sem verður vinsælt vegna auglýsinga, leiðinlegt. Ég var búin að fá ógeð af Rockstar áður en það byrjaði, ég nennti ekkert að fylgjast með Idol, hvorki hér né í Noregi og ég hef ekki þolað Nylon fyrr en núna (ég eeeelska nýja lagið þeirra!) þegar þær hafa sannað sig. Ég horfði á mynd um daginn sem mér fannst ferlega skemmtileg. Hún heitir Dogtown and Z-boys og fjallar eiginlega um það hvernig hjólabrettaíþróttin varð eins og hún er í dag. Allt er það nokkrum krökkum úr fátækrahverfinu Dogtown í California að þakka. Þau byrjuðu að skeita í tómum sundlaugum ríka fólksins (án leyfis auðvitað) eitt sumarið og notuðu brimbrettatækni til þess. Eftir að ég horfði á þessa mynd, áttaði ég mig á því að einu sinni, í gamla daga, þá urðu nýjir hlutir og tíska virkilega til án þess að nokkurra auglýsinga þurfti við... Fólk var ekki matað heldur ákvað það sjálft hvað væri kúl og gaman... Mæli með myndinni og líka Lords of Dogtown, sem er leikna (soldið Hollywood-dramatíseraða) útgáfan af sögunni... Hugsið ykkur svo að búa í heimi þar sem fólk er ekki matað á því hvað er "hot" heldur finnur upp á því sjálft?! Það væri örugglega áhugaverður heimur... Berglind @ 16:37
|
04 júlí 2006
Mikið finnst mér gaman þegar fólk kallar mig heillin, vinan eða gæskan... Mér finnst líka ofsalega gaman að afgreiða Breta, þússst þá sem eru ofurkurteisir og tala svo skemmtilega ensku... Jafnmikið og mér finnst leiðinlegt að afgreiða Reykvíkinga (og þá er ég að stereótýpera það fólk sem er ókurteist, óþolinmótt og finnst allt svo ógurlega dýrt úti á landi!) Berglind @ 22:36
|
03 júlí 2006
Ég er með fjóra norðmenn í heimsókn, tvær konur og tvo kalla. Önnur konan heitir Hildegunn og hin heitir Gunnhild. Það finnst mér fyndið :) Berglind @ 01:05
|
|
links
ásta
Grace: Follow the logic Will. First we're nice to him,
suddenly we're picking up his newspaper, then we're watering his plants. Before you know it, there's a fire
in the building and we're the ones who have to make sure he "got out okay." I'd rather find out on the evening news, thank you.
Isabella Swan: How old are you?
febrúar 2006
|
|||